08.02.2010 13:30:45 / Hitakutur

Nýtt myndband...

...er komið á youtube.

Er við lagið "Gefið mig allan". Lagið er á plötunni okkar.

Fengum kvikmyndasérfræðinginn Önnu Guðnýu Guðmundsdóttur, leikkonuna Hildi "BíBí" Jakobínu Tryggvadóttur, og hármeistarann Erlu Kristínu Hansen til að klippa á okkur hárið.

Hefðum ekki gert þetta nema vegna þeirra! 


Hérna er þetta:

http://www.youtube.com/watch?v=MIBwkX9WTrQ 

» 25 hafa sagt sína skoðun

02.09.2009 12:26:21 / Hitakutur

Nýr einhleypingur og annað!

1) Lag okkar "Í draumaheimi" hefur verið valið til þess að verða næsti einhleypingur Hitakúts. Texti lagsins er margræður texti um fólkið sem setið hefur fast í sínum draumaheimi. Mætti halda að lagið hafi verið samið til útrásarvíkinganna okkar:)

 

Endilega tékkið á því:)

 

2) Svo er ekki tilviljun að þetta lag komi út núna. Þetta lag er hljómborðslagið á plötunni okkar, "Ástin Míní". Með þessu lagi viljum við líka auglýsa eftir nýjum hljómborðsleikara þar sem hljómborðsleikari okkar flutti til Englands til að nema hljóðvinnslu og verður hann þar næstu ár.

 

Hver veit um hljómborðsleikara?

 

3) Við gáfum út myndband við lagið "Palli Sveins". Myndbandið hefur vægast sagt vakið mikla athygli, og það góða. ´

 

Endilega tékkið á því ef þið viljið/getið:)

 

 

http://www.youtube.com/watch?v=ROnIIOy6T1Y

 

Hafið endilega samband við mig í síma 695-3971 ef þið vitið um hljómborðsleikara, já eða ef þið viljið kaupa diskinn, kostar bara 1500 kall:)

 

bkv,

Grjóni Hitakútur

 


» 27 hafa sagt sína skoðun

02.07.2009 16:58:44 / Hitakutur

Nýtt lag frá Hitakúti


Við í Hitakúti vorum rétt í þessu að gefa út okkar næstu smáskífu, lagið er Palli Sveins (nr. 3 á plötunni okkar Ástin Míní).

Þetta er hresst og skemmtilegt lag, og er hér um að ræða ástaróð okkar til flugvélarinnar TF-NPK. Þessi flugvél hefur ávallt verið boðberi betri tíma. Sumarið kemst ávallt á flug þegar Palli Sveins fer á flug.

Þess skal getið að lagið byrjar á því að DC3 vél fer af stað, og fyrir þá sem pæla í tóntegundum og bíti, þá er greinilegt að flugvélin ræður tóntegund og takti lagsins. Er því í fyrsta skipti í heiminum sem flugvél semur grunn að lagi:)

Við síðan fengum leyfi frá Þristavinafélaginu, Landgræðslunni og Icelandair til að nota nafn vélarinnar, og viljum við koma þakklæti til þeirra á framfæri.

Nú er bara að láta útvarpsstöðvarnar vita af því að lagið sé komið út!!

og það kemur á tónlist.is sem fyrst!






» 44 hafa sagt sína skoðun

02.06.2009 00:22:17 / Hitakutur

Tvö frábær gigg um helgina

Tókum tvö frábær gigg um helgina

1) Spiluðum í tvöföldu afmæli á föstudagskvöldið hjá Pappa-Kittý og Gras-Lalla. Þetta gigg var frá upphafi til enda hreint út sagt stórfenglegt. Allir í brjáluðu stuði... magnaðar myndir af þessu giggi eru hjá Kittý... og eru inni á F-búkkinu hjá okkur flestum!
hérna eru nokkrir punktar frá gigginu:
a) Bendi fólki á að skoða hópmyndir þar sem YMCA er tekinn. Hef held ég aldrei séð neitt eins fyndið.
b) Okkur var bent á að á dansgólfinu hafi einstaklingar sést sem ALDREI áður hafi dansað... (hljómsveit sem leggur sig fram í því að koma fólki í gírinn getur einfaldlega ekki fengið betra hól en þetta enda var Hitakúturinn alveg við suðumark þarna)
c) C vaktin er betri en A vaktin... eða var það öfugt??? man það ekki:)
d) Sirrý gaf okkur að drekka
e) Sirrý gaf okkur meira að drekka
f) Ritskoðað... eftir giggið fór fram kynblöndun á slökkviliðsmönnum og Hveragerðistengdum ungmeyjum
g) Uxinn vann verðlaun fyrir bestu ullarpeysuna... en maðurinn í ullarpilsinu endaði með verðlaunin...  


2) Spiluðum í fertugsafmæli snillingsins Stjána Stuð á laugardagskvöldið. Einfaldlega langflottasta afmæli sem ég hef mætt í. Mörg bönd bættust við forhitaraflokkinn okkar, Geir Ólafs (sem var fkn flottur), Alexander Aron (með flottan gítar), Erna og önnur prímadonna,held að hún heiti Rúna með Abbashow (náðu upp stórkostlegri stemningu), Spútnik (Tóku 5 lög- en Angel með Robbie Williams tvisvar-flottir samt:)), skímó, Ingó og Unun.
Er sammmála því sem Ingó sagði, það er bara mikill heiður að fá að vera í þessum hópi flottra listamanna. að hafa fengið að vera með í þessu er mikil viðurkening fyrir okkur!
um leið og við byrjuðum varð stemmarinn frábær. Mikið dansað og trallað allan tímann. En hápunktur kvöldisins var auðvitað sá þegar Stjáni sjálfur kom upp og tók Honky Tonk Woman með okkur. Shi... hvað það var gaman.




Þessi helgi hreint út sagt frábær



og strákar... þessi helgi sýndi manni bara hvað þessu bandi hefur farið mikið fram síðustu misseri! Ég elska þetta band. Ég elska ykkur meira en jurtaís!



    

» 29 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 15:22:43 / Hitakutur

Lifa komið út

Höfum gefið út okkar þriðja lag!

Lagið "Lifa" komið út... og hægt er að hlusta á það á facebooksíðu bandsins og hægt er að hlaða því niður frá tonlist.is

Þetta lag er það sem einhver myndi kalla ólívulag, þ.e.a.s. það tekur smá tíma að venjast því... og þeir sem það gera munu algerlega falla inní það!

...Byrjar rólega, svo þegar á líður er allt í einu kominn heil synfoníuhljómsveit með Hitakúti í laginu... 20 fiðlur, 4 selló, kengbeiglað crash og svo er þetta toppað með snilldar þverflautu-sólóköflum frá Einari Braga.

Fiðlur: Irena sylva Roe
Selló: Þórður Þorsteinsson

Þetta lag er einfaldlega bara stórkostlegt og á skilið að ná eyrum sem flestra!

Textinn er um samlíf... upphaf og endi alls mannlegs lífs.


http://www.tonlist.is/Music/Album/265831/hitakutur/lifa/


Hver vill eyða deginum með mér???



Viljum þakka útvarpi Suðurlands kærlega fyrir að vera fyrstir að spila lagið í útvarpi. Aðrir fara vonandi að fatta það!:)

» 29 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 15:15:39 / Hitakutur

Til hamingju með daginn!

Mini fimmtugur

mynd
Hálfrar aldar gömul hönnun hefur haldið sér í meginatriðum fram á þennan dag.

skrifar:

Það var 8. maí 1959 sem fyrsta Austin Mini-bifreiðin rúllaði af færibandinu í verksmiðju í Cowley í Oxfordskíri. Þetta var tveimur árum eftir að hönnuðurinn Alec Issigonis skellti teikningum af bílnum á borðið hjá British Motor Corporation í Birmingham og hæstráðandi þar, sir Leonard Lord, sagði einfaldlega: „Smíðið kvikindið!" eða „Build the bloody thing!"

Þetta var gert og til að gera langa sögu stutta er sigurför þessa smávaxna en áreiðanlega grips ekki enn lokið. Bretar höfðu fundið verðugt svar við Alþýðubifreiðinni þýsku, Volkswagen Bjöllu sem allir áttu að hafa ráð á að eignast. Austin var ekki eina nafnið á Mini. Í Bandaríkjunum kallaðist hann Morris 850 og Mini Cooper var þekkt afbrigði sem hét í höfuðið á John Cooper sem reyndar var góðkunningi upphaflega hönnuðarins.

Það er óhætt að segja að Mini væri tiltölulega sparneytinn, 848 rúmsentimetra vélin í upphaflegu útgáfunni kreysti út 34 hestöfl og eyddi bókstaflega engu. Við lá að hægt væri að skipta um bensín einu sinni í mánuði. Kraftmeiri útgáfur komu með tímanum og bíllinn varð ódauðlegur í kvikmyndinni The Italian Job frá 1969. Svo ódauðlegur að nýjasta útgáfa hans var notuð í endurgerð myndarinnar árið 2003. Alec Issigonis var aðlaður fyrir framlag sitt til bresks bílaiðnaðar og hlaut nafnbótina sir árið 1969.

Bretar munu standa fyrir veglegum hátíðarhöldum á fimmtugsafmælinu.


» 28 hafa sagt sína skoðun

24.04.2009 09:44:50 / Hitakutur

Gott gigg á miðvikudagskvöldið!

Tókum gott gigg á bakka sem kenndur er við eyrar, fyrir skóla sem heitir BES!

Frábært að komast uppúr bókunum til að stökkva í gigg

Ótrúlega skemmtilegt!

---Dómarabíllinn drapst á leiðinni...aftur

---"hvernig var þetta?"


Sá ekki gömul hösl frá Sindra á staðnum 

Skemmtilegt í alla staði!



» 24 hafa sagt sína skoðun

30.03.2009 12:27:04 / Hitakutur

Önnur árshátíð:)

Spiluðum á árshátíð björgunarsveitarinnar í Hafnarfirði á laugardaginn. Árshátíðin var haldin í Nesbúð á Nesjavöllum.

Villi komst ekki vegna anna, en fengum Kidda snilling til að hoppa inní giggið fyrir okkur. Já og meðan ég man... hvernig í andskotanum er hægt að framkalla jarðskjálfta með bassa???

Rendum uppeftir fyrr um daginn til að róta, og stilla upp. Í Hveragerði höfðum við fengið Varmáskan Hilux til að koma okkur uppeftir, enda hefði ekki verið hægt með nokkru móti að koma kerrunni með öllu draslinu í gegnum skaflana sem höfðu myndast á leiðinni... enn síður svo leiðina heim.

Vissum þegar við fórum uppeftir að gigginu yrði seinkað um allavega klukkutíma vegna þess að björunarsveitin, fór ótrúlegt nokk, í björgunarleiðangur... og btw björguðu mannslífi.

Þegar við höfðum rótað renndum við á Selfoss til að skófla einhverju í andlitin á okkur... (éta, ef einhver skildi missilja þennann). Stoppuðum líka í Selfossbíói til að fá okkur bíópopp og bíókók sem er eina vitið. Legg til að bíópopp fyrir gigg verði að hefð hér eftir.

 

Leiðin uppeftir aftur var náttúrulega ferðin sem kemst í bransasögubókina. Rétt eftir að hafa beygt uppeftir hjá Biskupstungnaafleggjaranum komum við að bílslysi, einn bíll kominn lengst fyrir utan veg(hafði greinilega bjargað sér, öðrum og bíl sínum með því að fara útaf veginum), annar skemmdur eftir aftanákeyrslu og þriðji í klessu að aftan. Björgunarsveitabíll (ekki frá Hfj) reyndi að draga bílinn sem var fastur í skaflinum uppá veg aftur... á meðan því stóð settist bílstjóri eins af skemmdu bílunum á veginum í bíl sinn. Ekki tókst betur til en svo við dráttinn að björgunarsveitarbíllinn henti bílnum uppá veg og beint á bílinn sem maðurinn var nýbúinn að setjast í. Hélt einhverra hluta vegna að fyrst regla björgunarsveitarmanna sé að koma í veg fyrir skaða áður en farið er í að stökkva í annað. Ótrúlega klaufalega unnið. En við náðum allavega að hlægja að því þegar maðurinn stökk úr bílnum til að öskra á björgunarsveitabílinn, en björgunarsveitamaðurinn fattaði það ekki og spólaði af stað og spólaði öllum snjónum yfir þann brjálaða. Kannski ágætisleið til að kæla menn niður.

 ...hvað felst í orðinu björgunarsveit???

 

Þegar við svo komum aftur uppeftir komumst við að því að ennmeiri seinkun yrði á gigginu því maturinn væri fastur í skafli... björgunarsveitin, nú frá Hfj, fór því af stað til að draga sinn eigin mat uppúr skafli. Maturinn kom svo loksins einhverju seinna.

Við fengum því snilldarárshátíðar lamb áður en við hoppuðum uppá svið. Á meðan við vorum að gera okkur til, átum lambið, náðum við að spjalla svolítið við Bjarna töframann sem var veislustjóri. Skemmtilegur fýr.

 Mættum svo vel dressaðir, saddir og í rosalegu stuði uppá svið...

... en þegar við vorum að kveikja á græjunum... sló út... þannig að plöggin... UPPVIÐ Nesjavallavirkjun voru ekki að höndla venjulegt álag... þurftum því að redda því með auka plöggum.... Það er aldrei nóg af fjöltengjum... sko ef maðurinn inni í svartholinu hefði getað haft fleiri fjöltengi væri hann kannski ekki að leita að plöggi.(einkadjókur, Sorrý)

Komumst svo loks í það að spila, spiluðum á fullu pásulaust í tæpa 3 tíma... og giggið bara frábært. Allir að spila mjög vel.... Sindri hefur aldrei sándað eins vel, enda kominn með græjurnar sem hann vill hafa:)

Hafnfirðingar kunna svo sannarlega að skemmta sér... stundum hélt maður að gólfið myndi pompa undan kofanum, trégólf sem virkaði ekki mjög traustvekjandi og ef fólkið á gólfinu hoppaði upp, myndaðist bylgja í gólfinu og við skoppuðum upp á móti stuttu seinna... Þetta var einfaldlega alveg rosalega skemmtilegt gigg... vel heppnað... fólkið í miklu stuði og mikill power í gangi. Bara frábært gigg.

 Á leiðinni út kom svo mjög skemmtilegt hól sem mér fannst gaman að fá... það er nú ekki oft sem maður mætir á ball þar sem maður kann einfaldlega alla textana. Það er svo gaman.

 ---djöfull er ég sammála því... þetta er alveg ógeðslega gaman :o)


» 28 hafa sagt sína skoðun

23.03.2009 23:28:37 / Hitakutur

Árshátíð

Spiluðum á árshátíð Hveragerðisbæjar síðasta laugardagskvöld. Mér finnst það mikill heiður að hafa fengið þetta gigg... en á mig fóru að renna tvær grímur þegar tónlistarmenn í bæjarfélaginu sögðu okkur að þetta væri algert brjálæði því nánast allir færu strax heim og ballið yrði alltaf eitthvað bull...

 En maður lítur bara alltaf á svona hluti sem áskorun.

 Þegar við vorum að róta kom til okkar hópur sem við vissum ekki að kæmi til að testa á sama tíma, strax eftir því byrjaði matur þannig að við náðum ekki að soundtesta nægilega vel.... já eða réttara sagt bara ekki neitt:)  Stóri salurinn er víst þannig að mjög erfitt er að fá gott sánd í honum. Við byrjuðum því giggið án þess að hafa testað hljóðið nægilega vel, útkoman var t.d. sú að ekki heyrðist neitt í allavega einum monitor, söngur út var allt of lár o.s.frv.... Við byrjuðum líka án dómarans sem var fastur við skyldustörf. Hann er aðalsándmaður bandsins, enda vel skólaður í slíkum fræðum.

 En þrátt fyrir allt þetta komum við okkur í gang strax frá fyrsta lagi... spiluðum svo pásulaust í nærri 3 tíma... hellingur af fólki á gólfinu... og fínn stemmari. Dómarinn kom svo eftir einn og hálfan tíma... og allt þetta varð þegar upp  er staðið að mjög fínu giggi...

En eins og ég segi þá kemur alltaf allavega eitt monent sem maður verður að documentara til að setja í bransasögubókina... Eftir að við tókum Billie Jean, sem var með síðustu lögum okkar, kom til okkar kona (alltaf kona) og við áttum smá samtal uppi á sviðinu...

Konan “Þið verðið að hætta að taka þetta lag... já eða æfa það betur”
Svo hélt hún áfram “ég veit hvað ég er að segja... ég hef verið dómari í IDOL”
Ég greip þetta strax á lofti minnugur snillinganna sem taka núna þátt  í þeirri keppni og sagði brosandi “Nú ertu stolt af því?” Svarið var einfalt sem ekki verður haft eftir henni hér... allavega var það eitt orð og málið varð þar með útrætt.... Skemmtilegt atvik.

En annars veit ég það að fyrir hvítan mann að taka Billie Jean er alltaf brjálæði... en þetta lag hefur bara virkað svo ótrúlega vel hingað til hjá okkur:) Já og kona góð, ég er alltaf til í söngtíma ef þú getur kennt mér, veit allavega að maðurinn þinn er frábær og líkur sækir líkan heim... ég hef nefnilega aldrei mætt í söngtíma og ég er alltaf til í að bæta mig:)  

Eftir giggið kíktum við á djammið og svo í partý... þar sem dómarinn hélt uppi rokkarastaðli bandsins... það er önnur saga í bransasögubókina...

Sindri fór svo heim með karlmanni


» 29 hafa sagt sína skoðun

19.03.2009 21:52:48 / Hitakutur

Afmælið hans Stjána

sælir strákar hérna kemur dagskráinn fyrir afmælið
 
 
 
                      19.00 ABBA SÝNING
 
 
 
                       19.30  SIXTIES
 
 
 
                        20.00  TRÚTÓN
 
 
                        20.30  INGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR
 
 
 
                        21.00   KLAUFAR 
 
 
 
                        21.30  GREIFARNIR
 
 
                        22.00  SPÚTNIK
 
 
                        22.30 Á MÓTI SÓL
 
 
 
                        23.00  HITAKÚTUR
 
 
 
                        02.00  DAGKRÁ LOK
 
 
 
 
                      KVEÐJA STJÁNI STUÐ

» 24 hafa sagt sína skoðun

15.03.2009 00:31:07 / Hitakutur

Árshátíð og annað gigg

Lofaði að henda bloggi um tífaldaárshátíð sem við spiluðum á síðasta laugardag. 10 deildir innan háskólans héldu sameiginlega árshátíð, fullt af fólki og fullt af stuði, glensi og gamni:)

Fyrir giggið leit út fyrir að Beggi kæmist ekki og því fengum við Stjána snilling til að taka að sér trommuleikinn. Alltaf heiður að fá að hafa slíkan snilling með:)

En Beggi lét sig að sjálfsögðu ekki vanta... við urðum því 7 uppi á sviðinu.... sviðið ekki það stærsta í Súlnasal Hótel Sögu... sviðið er í boga, og það er verkfræðilegt afrek að 7 menn hafi komist á svið með hljóðfærunum, og haft smá svæði til að hreyfa sig í leiðinni... en við redduðum þessu öllu:)

 ...og ÞVÍLÍKA andskotans snilldargiggið... stemmarinn á nemum algerlega brjálaður... Frá upphafi til enda... nokkrir punktar.

 1) Ein af aðalástæðunum fyrir því að við fengum þetta gigg var það að við tökum ekki frumsamin lög nema um það sé beðið sérstaklega. Mér sjálfum finnst ekki gaman að vera í dúndurstuði á balli, svo kemur eitthvað frumsamið prump frá böndunum... og ég hef því tekið þá ákvörðun að fara afar varlega í að taka okkar eigin lög... en mikið var beðið um Kaffilagið, sem mér þykir mjög vænt um að hafa fengið, og við létum því vaða(og Stjáni alveg óundirbúinn undir slíkt, en negldi það algerlega). Tókum því Kaffi... og þetta lag er bara stuð:)

2) Fullt af gömlum höslum frá Sindra í salnum

3) Spiluðum ekki eins lengi og við hefðum viljað... og staffið á staðnum reyndi að stoppa okkur 6 sinnum... og á meðan er fólk talið í hundruðum að dansa og vill meira... maður velur þá þann kost að halda áfram... Hefðum bara spilað pásulaust ef við hefðum vitað að við yrðum stoppaðir svona snemma af staffinu. Tókum nokkra dúndur slagara í lokin... og allt varð crazy:)

4) Skál og Hnífur

5) Stemmarinn var bara svo frábær.... Ótrúlega skemmtilegt gigg

6) Nýja kerfið algerlega að standa fyrir sínu

7) Allir að standa sig eins og hetjur

8) Já og þvílíka þétta bandið svona

9) Hydroxycut

10) Gaman að þekkja svona marga á gólfinuJ

11) Frábært gigg í alla staði


Hér er svo umfjöllun sem ég stal af netinu (http://regnhlif.blogspot.com)... með engu leyfi höfundar:
 

Svo var ball með ýmsum öðrum deildum. Til dæmis var Lora frænka þarna. Og díos mio hvað ég skemmti mér vel á dansgólfinu. Ég dansaði eins og hálfviti. Í alvörunni. Hreyfði alla skanka eins og ég fengi borgað fyrir það og var alveg sama hvernig ég leit út. Ég er að tala um að ég tók aktúally afró á dansgólfinu. Þetta var kannski ekki eina skiptið sem ég missti kúlið. Til dæmis byrjaði ég á því að hella yfir allt borðið okkar fordrykknum. Síðan lenti ég, mjög óheppilega, TVISVAR í því að rennilásinn á kjólnum mínum (sem nær niður eftir öllu bakinu) gliðnaði í sundur. Kjóllinn gapti því opinn í bakið og ég gat mig hvergi hrært. Sigrún var bjargvættur kvöldsins og náði í fyrra skiptið að laga rennilásinn, en í seinna skiptið sat allt pikkfast. Ég neyddist því til að fara heim og skipta! um kjól á miðri árshátíð (Sigrún kom mér aftur til bjargar og skutlaði mér heim (sem var reyndar mjög stutt, bara svona 7 mínútna gangur:)). Fæstir tóku eftir því að við Sigrún hyrfum þarna í 20 mín og urðu frekar hissa þegar ég var á undraverðan hátt skyndilega komin í annan kjól. Þetta var reyndar bara alveg ágætt, ég er nokkuð viss um að ég hefði ekki getað dansað afró í fyrri kjólnum. Sá seinni var nefnilega mun lausari og veitti mér miklu meira frelsi.”

 

---Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í hljómsveit:)

 
Upphitunargigg

Spiluðum í 30 mín fyrir körfuboltaleik Hamars og Þórs frá Þorlákshöfn.

Hér koma punktarnir:

1)Ekki margir mættir
2) Allir sem voru mættir voru á mikilli hreyfingu
3) Enginn afródans samt
4) Fengum að spila í búningum, og við sem erum ekki jafnstórir og Jón Steinar litum út eins og dvergar... ekki bara eins og algerir tittir:)
5) Sá ekkert gamalt hösl frá Sindra þarna:)
5) Hamar er kominn upp í úrvalsdeild þar sem liðið á heima


» 25 hafa sagt sína skoðun

13.03.2009 00:19:30 / Hitakutur

Nokkur gigg síðustu daga

Tókum fyrstu helgina okkar í Vestmannaeyjum 13.-14. feb

Spiluðum á stað sem heitir Lundinn 

Hægt er að fara mörgum orðum um þessa ferð:
Segi þetta í nokkrum punktum

1) Ferðin til eyja var mjög róleg og þægileg

2) Djammið byrjar seint á Lundanum

3) DÚNDUR stemmari...síðasta klukkutímann bæði kvöldin

4) Mikil reykjarlykt, á staðnum og í gistingaraðstöðunni

5) Ekki fögur gistiaðstaða

6) Athyglisverðir karakterar: Freyr Ólafsson, maðurinn sem vildi borga 50.þús fyrir lag með Árna Johnsen(og fær senda til sín kröfu um leið og ég útskrifast), “hvern þarf ég að kýla til að fá eyjalag” gaurinn, maðurinn sem svaf allann tímann, dansandi pólverjar, brjálaða pólska konan, óþrifni gaurinn, Einar K. Guðfinnsson, Hugh Hefner, The only gay in the village, öskrandi stúlkur, Gianfranco Zola, fjólubláa konan og nokkrir aðrir, sem auðvitað má nefna síðar, þegar ég man eftir þeim:)

7) ótrúleg óskalög, Haleluja og Hit the road Jack... WHAT!?

8) Pizza 67

9) Rosalega skemmtileg helgi

10) Minnsta svið í heimi!

11) Jón Steinar talar upp úr svefni... Helvítis... BAMM... SSSSHHH... andskotinn... nýnasistar... Atli Freyr! (Því miður er ekki til “Tala uppúr svefni” orðabókin til að túlka svona hluti)

12) Sindri hélt uppi rokkaraímynd sinni með því að vakna með nærbrók annarrar menneskju í rúminu sínu (nöfn skulu ekki nefnd í þessu sambandi... en grunur beinist að öðrum... uhhmmm... karlmanni)

13) Frábært starfsfólk á Lundanum

 14) Ferðin heim var auðveld og þægileg


 
Þorrablót

Mættum til að spila frítt á þorrablóti 21. feb, spiluðum frítt til að styrkja konu sem er að vinna sig uppúr bruna.

Okkur var veitt viðurkenning fyrir samstöðuna, mikill heiður sem mér fannst mjög vænt um að taka á móti. En vil bara nota tækifærið til að endurtaka það sem ég sagði áður, þetta er einfaldlega spurning um að vera hluti af samfélagi, þegar fólk lendir illa í hlutunum er hinna að hjálpa fólki á réttan kjöl, og þetta er það sem við getum gert. Þetta er bara okkur ljúft og skylt að taka þátt í svona hlutum.

Giggið sjálft lendir í bransasögubókinni sem giggið þar sem allt klikkaði sem gat klikkað, tæknilega séð. Kerfið var eitthvað að stríða okkur(einn magnari sprakk), ekki mikið náðist útúr rafmagnsgítarnum, bassastrengur slitnaði, gítarstrengir fóru og margt meira gerðist sem ég man ekki eftir. Allt var eitthvað svo skrýtið

En giggið gekk samt glimrandi vel, og við létum tækniatriðin ekki stríða okkur of mikið... Menn héldu áfram alltaf

 En alltaf lendir maður í allavega einu atriði sem er nýr kafli í bransasögubókina.

-Eldri kona kom upp að okkur og vildi fá að heyra eitthvað íslenskt og það þyrfti að “hræra upp í þessu”.  Vissi ekki þá hvað hún átti við, og veit það ekki enn.. því 75% af því sem við tókum var á íslensku(tékkaði á því eftir gigg) t.a.m. tvö síðustu lögin á undan því þegar hún kom upp á svið. Held samt að hún hafi verið að meina kokkinn eða eitthvað slíkt þegar hún meinti að við yrðum að “hræra uppí þessu”. Hefðum bara tekið hann ef hún hefði sagt það:) Málið er bara það að karlmenn skilja ekki ósögð orð... –Skemmtilegt atriði... bara gaman:)

 Giggið var heilt yfir alveg frábært.

 Þegar farið var heim fór Sindri á 800 bar og hélt rækilega uppi rokkaraímynd sinni.... vitum ekki hvernig nærbrók hann vaknaði með í höndunum í þetta skipti:)

 

Tókum svo Paddy´s Keflavík 28. feb

Mættum þangað til að heilsa uppá Keflvíkinga, eftir að hafa ekki spilað þar í rúmt ár. Polar Beer var með kynningu sem kom öllum í stuð... við gripum því á það ráð að spila allir í rauðum Polar Beer bolum.

Dúndur stuð allan tíman og satt að segja hef ég sjaldan skemmt mér eins vel á giggi. Í lokin hélt maður að þakið myndi rifna af kofanum. Allir að standa sig eins og hetjur.

En eins og ég segi koma alltaf upp einhver moment sem verður að minnast.

1) Born to be wild... var svo wild að rackinn hans Sindra varð að fótbolta og að mikrófónn flaug í sundur í hamagangnum!

2) Skál og hnífur eins og í lygasögu

3) Polar Bjór

4) “Þú ert ekki síðri bassaleikari en Rúnni frændi”

5) "Þú getur bara verið rúski úti!"

6) Samtal:

Kona: Sæll, Heyrðu?...

Hitakútusmeðlimur: Sæl

Kona: Hvað heitiði?

H: Hitakútur

K: (Fer að hlæja)...flott nafn

H: Takk

K: já og flott hljómsveit

H: Takk

K: Þetta er bara svomikið samansafn af myndarlegum karlmönnum

H: Takk fyrir það

K: Þú ert rosalega myndarlegur

H:...uhhh... já... takk

K: Þetta band er bara svo mikið samansafn af karlmönnum, að maður fer bara hjá sér þegar maður er að horfa á ykkur... maður bara fipast þegar maður er að dansa og reynir að horfa uppá svið á sama tíma...

H: (reynir að grípa inní)... nei come on...

K: já og bassaleikarinn... Hvað er hann gamall... maður sér mjög sjaldan svona myndarlegan mann.. já... bara þið allir... þetta er bara ótrúleg hljómsveit.

H: Takk fyrir þetta... þú finnur okkur bara á facebook... ég verð að fara að þjóta í rótið.

K: (Horfir dreymandi uppá svið) Já og hljómborðsleikarinn...




7) Komumst ekki út strax útaf æstum aðdáendum

8)Ferðin heim fór í að skamma bassaleikarann fyrir að geta ekki farið í eftirpartý!

 




Næst kemur yfirferð yfir 400-500 manna gigg hjá Háskóla Íslands um síðustu helgi!


» 34 hafa sagt sína skoðun

12.03.2009 16:39:43 / Hitakutur

Framundan:

3.13.09 Upphitunargigg fyrir körfuboltaleik
3.21.09 Árshátíð Hveragerðisbæjar
3.28.09 Árshátíð
4.02.09 Stokkseyri
5.29.09 Afmæli Pappa-Kittýar og Lalla
5.30.09 Afmælið hans Stjána
7.18.09 Brúðkaup
10.10.09 Brúðkaup

» 26 hafa sagt sína skoðun

09.02.2009 12:59:32 / Hitakutur

Tvö gigg um helgina

Tvö gigg um helgina

 

Afmæli

 

Spiluðum í afmæli Arnars Elí og Söndru á föstudagskvöldið.

Bættum nokkrum lögum inní prógrammið okkar, þetta gigg fer í sögubækurnar sem Hámarks-próteinsdrykkjar giggið.

 

Já, meðan ég man... djöfull kom hann mér á óvart... er miklu betri en ég átti von á.

 

Spileríið okkar var... í lagi... nýju lögin að virka rosavel.

 

Prófaði ákveðna hugmynd sem virkaði ekki nægilega vel... ég sem trúi því að þegar maður er í hljómsveit verður að vera ákveðið chemistry í gangi. Þessi hugmynd mín virkaði því ekki alveg nægilega vel...

 

...svona eins og þegar Jói mætti fyrst á sviðið hjá okkur... þá hugsaði maður... svona á þetta að vera.

 

En aftur að gigginu... söng úr mér lungun, á þessum annars stutta tíma.

 

Frábært gigg

 

 

Þorrablót

Eftir að hafa farið nokkar ofurferðir á vesturland, (sem hafa innihaldið, snjó upp á nafla, sprungin dekk, tónleika í Hvalfjarðargöngum(hurðin til helvítis, lögreglan, myndataka, heimsmet í hundrað metra hlaupi), skaflar, hoppandi karl-gógó dansara í fiskikörum, gult hitkútsmerki fest í snjó, beljur, brjóst og fleira) hélt ég að ekki væri hægt að toppa ferðirnar þangað.

 

...en það er víst hægt.

 

Jói komst því miður ekki vegna veikinda.

 

Byrjum á leiðinni þangað... dómarabíllinn þorði ekki vestur og henti undan úr sér hljóðkútnum sem skrapaði alla leiðina frá Hellisheiði fram að Olís sjoppunni við Rauðavatn. Náðum að redda því með því að skipta um bíl.

 

Villi og Sindri komust því fyrstur á staðinn...  Þegar þangað var komið kom í ljós að hljóðkerfið sem átti að vera á staðnum var 6 rása Vocal Master Shure kerfi frá ca. 1937, sem hefði sprungið hefðum við prófað að plögga meiru en einum míkrófóni í kerfið... enda höndlaði það ekki einn míkrófón á meðan hann var notaður.

 

Hlóðkerfislausir urðum við að treysta á Begga sem að sjálfsögðu mætti með kerfið, 30 mín áður en giggið hófst. Fengum líka ábendingu um að húsið væri ekki nægilega gott til þess að koma almennilegu sándi frá okkur. Það má alveg viðurkennast að Hlaðir í Hvalfirði er ekki hús sem er gott til tónlistarflutnings... en þegar maður er kominn á staðinn gerir maður auðvitað gott úr öllu sem maður hefur og eftir 2 lög var sándið hætt að bögga mig... og á þriðja lagi fannst manni það vera orðið þægilegt.

 

En þvílíka öskrandi, fáránlega, rosalega, skemmtilega giggið var þetta.

 

Fólkið í Járnblendifélaginu kann sko sannarlega að skemmta sér.

 

Tókum nokkur lög sem við höfum aldrei tekið áður og því líka snilldin.

 

Fimm atriði fara í bransasögubókina:

1) Kerfissagan

2) Það kveiknaði í húsinu og enginn tók eftir því, á einu borðinu magnaðist upp eldur á kerti. Villi varð fyrstur til að taka eftir þessu og henti sér í það að slökkva eldinn.. ekki tókst það betur en svo að eldurinn magnaðist upp um leið. Ákvað Grjóni þá að stökkva af sviðinu líka með vatnsglas sér í hönd... á meðan á öllum þessum hamagangi stóð voru allar að öskra lokakaflann úr Barfly þeirra “Jeff who?” manna. Beggi áttaði sig á þessu og hélt áfram að berja lagið á fullu... sem varð til þess að enginn tók eftir því að Villi var í óða önn að slökkva eldinn, sem tókst á einhvern ótrúlegan hátt... hann hoppaði svo á sviðið og lagið kláraðist. Ótrúlegt dæmi.

3)Svipurinn á Villa þegar Grjóni sagði honum að taka YMCA, sem var tekið uppúr þurru (höfum aldrei gert það áður)

4) Hösl sagan af Sindra... sem mun koma út í bókinn “Gamansögur Hitakúts” sem mun koma út sem fylgiskjal með aðgöngumiða að tónleikum Coldplay í laugardagshöll 2052... þar sem við munum hita upp.

5) Þegar við vorum að klára fimm síðustu lögin kom til okkar maður sem spurði hvort við værum ekki örugglega á amfetamíni... og mig langar að svara þessu núna... Það er opinbert leyndamál bandsins að við spilum langoftast alveg edrú... og ef það sést bjór á sviðinu þá er það einhver annar sem hefur komið með hann, já eða að hann sé bara sá fyrsti... því við fáum okkur venjulega ekki bjór fyrr en við erum búnir að spila. Fáum okkur kannski einn þegar við erum að klára. Málið er bara þetta: Þegar menn eru edrú, hoppandi, trallandi og í stuði virka menn svo rosalega orkumiklir. Þannig að þetta hefur verið hans leið til að hæla okkur fyrir það að vera orkuboltar sem hættu ekki að skoppa, sama hvað á gekk.

 

Já.. og kerfið okkar höndlaði ekki hamaganginn og einn toppurinn úr kerfinu gafst upp! Kannski ónýtt dót.

 Hoppuðum um sviðið allann tíman

 Í lokin var giggið farið að snúast uppí algera snilldar vitleysu þar sem við tókum YMCA og Fiskinn minn og eitthvað annað eins.

 Þvílíka, öskrandi, fáránlega, rosalega, skemmtilega, rafmagnaða giggið.

 

 Ferðin heim var svo mjög róleg með týpíska pulsustoppinu í Reykjavík... sem fer líka í bransasögubókina...

 “..ég er rúmlega fimmtug og tvífráskilin frá Þorlákshöfn...” “Hvað ertu að stela henni frá mér???”

“...ég á gullfallega dóttur...” “hvað er þá trekantur???” “neinei hún er sko gift...”

“...ég þekki pabba þinn...” “já og þinn...” “já og þinn...” “já og þinn auðvitað líka”

 "Gossabrekka-kossabrekka"

 "--híhíhí"


» 37 hafa sagt sína skoðun

25.01.2009 22:11:42 / Hitakutur

...Eitthvað smá að g-era hjá okkur á næstunni

31. jan  Tökum-Lokið-Partý      Kópavogi

6. feb   Afmæli Söndru             Hveragerði

7. feb   Þorrablót                      Akranesi

13. feb Lundinn                        Vestmannaeyjum
14. feb Lundinn                        Vestmannaeyjum

21. feb  Þorrablót                     Gaulverjabær

(27. feb Paddy´s                      Keflavík)
28. feb  Paddy´s                      Keflavík

7. marz 10 Árshátíð(ir) H.Í.      Reykjavík  

21. marz Árshátíð Hvg- bæjar Hveragerði

30. maí Afmæli Stjána Stuð       Reykjavík

18. júlí  Brúðkaup                     Akureyri/Árskógssandur


» 33 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Dagsetning
19. maí 2012
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  35  Alls: 70344
Leitarbox